top of page
No tags yet.

Færslur eftir efni: 

Nýlegar færslur: 

Gömul portret málverk

Ég ELSKA gömul og helst smá veðruð málverk. Sérstaklega portret málverk. Ég á aðeins eitt (....eins og er), en vil helst vera með heilan vegg af þeim! Því miður er úrvalið hér heima ekki mikið enda takmarkaðra úrval hér á Fróni en á meginlandinu. Líklegast eru ekki allir hrifnir af því að hafa ótal augu drauga fortíðarinnar stara á sig alla daga þegar slaka á uppi í sófa. Mér finnst það notalegt, og þætti líklegast verra ef ég þekkti fólkið... sérkennilega snúið.

Litirnir, kontrastarnir, dýptin, ljótleikinn og formlegheitin finnst mér aðlaðandi. Þar fyrir utan dáist ég að fólki sem býr yfir hæfileikum og tækni til að mála svona fínerí.

Þetta er einfaldlega flott, og setur skemmtilegan svip á herbergi. Látlaust en augað dregst samt svo sterkt að þessu.


bottom of page