top of page
No tags yet.

Færslur eftir efni: 

Nýlegar færslur: 

Nýtt sjónvarp sem er líka listaverk!!

Ég hef verið bænheyrð!!! Í júní mun Samsung setja á markað nýtt sjónvarp, Frame TV, sem lítur út eins og listaverk eða ljósmynd þegar slökkt er á því! Þetta er gjörsamlega það besta sem ég hef heyrt í lengri tíma. Það er UHD og hægt fá í tveimur stærðum, 55' eða 65'. Á skjánum er mött filma til að takmarka speglun og líkja meira eftir gleri í römmum. Auk þess stillir sjónvarpið sjálfkrafa birtustigið í skjánum eftir birtunni í herberginu. Veggfestingarnar eru hannaðar þannig að það fellur alveg að veggnum, alveg eins og myndarammar. Rúsínan í pylsuendanum er svo að það er með "ósýnilegum snúrum", ég kann nú ekki að útskýra það en kíkið á myndbandið neðst í færslunni.

Ég bara get ekki beðið eftir að eignast þetta!!


bottom of page