Á instagram fylgist ég með einni Suður-Kóreskri blómadömu sem býr til og ljósmyndar einhverja þá fallegustu vendi sem ég veit. Hún er í þokkabót í Gangnam hverfi Seoul!
Ég elska blóm, þó svo ég sé Svartidauði í þeirra augum (kaktusar þar með taldir). Með afskorin blóm þá hef ég alla vega smá "cover-up" í þeirri staðreynd að þau lifa ekki nema vissan tíma svona í vatni (þó alltaf styttra hjá mér...).
Þessi hæfileikaríka blómastúlka í Gangnam er með Instagramið "vanessflower", endilega kíkið á hana ef þið eruð jafn hrifin af blómum og ég. Vendirnir, litirnir og stíliseringin er bara út í gegn flott.