top of page
No tags yet.

Færslur eftir efni: 

Nýlegar færslur: 

Blogg sem vert er að skoða

Babes in Boyland er ein af mínum uppáhalds blogg- og instagram síðum, fallega hrá og draumkend stemning. Ljósmyndinar eru eins og úr ævintýri og soga mig algjörlega inn. Frá 2011 hafa þær Nathalie og Matilda haldið úti síðunum ásamt því að taka að sér ýmis verkefni, m.a. fyrir Ikea en það var þannig sem ég uppgötvaði þær. Hérna eru hlekkir á það sem þær unnu fyrir Ikea í tengslum við hrekkjavökuna og jólin.

Nathalie er grafískur hönnuður og stílisti en Matilda er ljósmyndari og hönnuður. Fyrir utan að hafa unnið verkefni fyrir Ikea, hafa þær verið í þýska Good Health Magazine, Today.com, Femina.se, Plaza Interiör og Gardenista. Síðan þeirra er núna hýst undir einum vinsælasta "blogg hatti" Svíþjóðar, Lovely Life.

Þær heillast af sjálfbærum lífsstíl og slow living (enda má sjá mikil tengsl milli þeirra og Kinfolk). Fyrir utan heillandi ljósmyndir og uppstillingar má finna á siðunni girnilegar uppskriftir sem eru ekkert síður heillandi.


bottom of page