top of page
No tags yet.

Færslur eftir efni: 

Nýlegar færslur: 

Hamam handklæði, ekki bara falleg heldur praktísk!

Hvað er betra en þegar fallegir hlutir eru súper praktískir? Það er svo sannarlega ekki alltaf gefið! Ég er því algjörlega hugfangin af Hamam handklæðum þessa dagana. Þau eru ekki bara yndislega falleg heldur eru þau ótrúlega rakadræg þrátt fyrir að vera þunn og fyrirferðalítil!! Til samanburðar má benda á að þyngd þeirra er aðeins einn þriðji af venjulegu handklæði, og umfang þeirra eftir því. Samt sem áður er rakadrægnin einstök. Þau eru hreinlega upplögð til að taka með sér í ferðalög, á ströndina eða bara í íþróttatöskuna. Annar kostur þeirra er svo hvað þau þorna fljótt, eitthvað annað en þessi venjulegu!

Handklæðin hafa lengi verið notuð í Marokko, Tyrklandi, Túnis og fleiri arabaríkjum. Eins og nafnið gefur til kynna þá tengjast þau þeirri aldagömlu hefð að stunda hamamböð.

Það sem gerir þau líka svo frábær er hvað það er hægt að nota þau á marga skemmtilega vegu fyrir utan sturtu- eða sundferðir, td. sem teppi, dúk eða sarong.


bottom of page